Viðvaningslegt
9.5.2010 | 06:24
Mér blöskrar oft viðvaningsleg og ófagmannleg vinnubrögð hinna svokallaðra fréttaritara hjá mbl.is. Þessi fyrirsögn "Dópaður og með risastóran hníf" væri kannski eitthvað sem maður myndi sjá á status á facebook hjá einhverjum unglingnum, já eða sem fyrirsögn á bloggi eða hjá slúðurblaði. en ekki fyrirsögn hjá fréttamiðli sem á að heita virðulegur og rótgróinn fréttamiðil.
Ég veit ekki hvers er krafist af fréttariturum mbl.is eða hvort nokkurs sé krafist nema að kunna að skrifa og tala íslensku.
Pirrandi!
|
Dópaður og með risastóran hníf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


malacai
agustg
ellahelga
heidathord
keli
jenfo
fullvalda
Athugasemdir
"....sé krafist nema að kunna að skrifa og tala íslensku."
Hef nú ekki séð að þeir uppfylli þetta ! :p
Nú síðast var í frétt um flugumferð á Akureyri "ríðarleg umferð. kannski fréttaritari sé ennþá í helgarstuði....
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 9.5.2010 kl. 09:18
Mér finnst margir sem skrifa greinar á netinu, fyrir hönd Morgunblaðsins vart vera pennafærir. Þeir beygja vitlaust, endalausar ritvillur og málvillur, svo slæmar að ég fæ sting í mitt viðkvæma íslenska hjarta.
Magga. (IP-tala skráð) 9.5.2010 kl. 11:25
Mér finnst allt í lagi að segja "dópaður"
Á að nota eitthvað fínna orð yfir svona dópista?
Þetta eru dópisti, aumingi, viðvaningur... í þessu tilviki er með hníf og ætlar greinilega að særa eða drepa einhvern sem er mjög slæmt.... ekki nema það sé hann sjálfur (sem er skárra)
Betra valda sjálfum sér skaða með áfengi eða fíkniefnum heldur en að taka saklaust fólk með sér í ruglið
Gunnar (IP-tala skráð) 9.5.2010 kl. 12:16
Þetta er nú ekkert miða við visi.is. Þar er tungumálið svo lélegt að jafnvel útlendingum blöskrar.
Sjonni (IP-tala skráð) 9.5.2010 kl. 12:54
"Undir áhrifum fíkniefna og með gríðarstórt eggvopn í fórum sér"
Af hverju ætti þessi fyrirsögn að hljóma eitthvað betur? Ég er alveg sammála ykkur með beygingarvillur, innsláttarvillur og almennt lélega notkun íslenskunnar, en að kalla valið á þessari fyrirsögn "viðvaningsleg og ófagmannleg vinnubrögð" finnst mér nú heldur langt gengið.
Það væri nú fróðlegt að bera saman villur í þessum kvörtunartextum ykkar og villur í þessari umræddu frétt.
Atli (IP-tala skráð) 9.5.2010 kl. 17:22
Það er heldur langt gengið að ætla að bera saman villur bloggara sem engum þarf að þóknast nema sjálfum sér og síðan skrif fréttaritara tel ég nú. En endilega berðu saman villurnar og athugaðu hvor hefur betur.
Fyrirsögnin "Undir áhrifum fíkniefna og vopnaður hníf" hljómar betur einfaldlega vegna þess að það er öllu betra málfar en hitt, að mínu mati. Enda var þetta mín skoðun, ekki allra ;)
Engu að síður eru málfars-, stafsetningar- og málfræðivillur í fréttaritun vefmiðla allt of algengar og orðalagi oft ábótavant.
Elín Ýr , 10.5.2010 kl. 00:20
Er sammála pistlahöfundi hér.
Að draga inn í fréttina að hann hafi verið með hníf innan seilingar og fer megnið af fréttini í að draga upp það sem að mögulega hefði geta gerst.. enn það gerðist ekki.....dregin upp mynd af hryllilegum glæp sem aldrey var framinn...
Ekki það að ég sé að verja þann ólukkumann sem á í hlut enda framdi hann alvarlegt lögbrot og gefur ansi óhugnarlegar skýringar..... en hann var einnig með stýrið við höndina og samræmi við hugmyndaflug fréttamanna gætu þeir allveg eins sagt að hann hafi mögulega geta ekið þá niður og auðveldlega falið líkin þar sem hann var á bíl......... Margir umdeilanlegir dómar þar sem spilling að eitthverju tagi og óréttlætið í málsmeðferð er nánast undirstrikuð með þar til gerðum penna..... fá enga umfjöllun.????... og nú er þá fíkniefnaakstur rannsakaður sem tilraun til manndráps með eggvopni?????........
Nú þegar þjóðinn er væntanlega öll búin að dæma þá er bara efitir að setja upp show líkt og stjörnu(lögfræðinga)leit og megi leikarinn sem frammsetur sama hlutvekið best... vinnur .
Ef að menn villja svona Fréttir....
að. Árni jonhsen hafði stolið dúk og hellusteinum til að búa til mögulrgrar cannabisræktun enn leit að henni stendur yfir.......
Einnig hafi fundist falsaðir pappírar í nafni jóns og er áættlað að um Nígeríusvind hafi verið stundað málið er í rannsókn......Hmmmm...... og einnig á hann inniskó sem stendur á AL-Quaida (Límmiði) sem í raun er lögmæltur skóframleiðantd í uspakistan.....
Svona vilja menn víst hafa fréttamiðla....þvílík skömm
Gunnar Þórbergur Harðarson, 10.5.2010 kl. 05:51
Og P.S..............vel ég þá frekar, af tvennu illu, Séð og heyrt......... þar eru brandararnir allir á ,,einni síðu,, í staðinn fyrir hizt og hér,, eins og í öðrum miðlum
Gunnar Þórbergur Harðarson, 10.5.2010 kl. 06:09
Nánast öll þessi frétt er ekkert nema kjaftæði og ýkjur
Belsen (IP-tala skráð) 10.5.2010 kl. 19:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.